CrossFit Krakkar

CrossFit Krakkar - 16 vikna námskeið hefst 31.ágúst og 1.september 2026

Krakkaþjálfun CrossFit Sport er styrktar- og þrekprógram sérhannað fyrir börn.
Prógrammið hentar bæði samhliða öðrum íþróttum eða sem aðalíþrótt.

Samblanda snerpu-, fimleika- og þrekþjálfun til þess að ná fram bestu frammistöðu barnsins auk þess að koma á fót áhuga á hreyfingu.
Styrktar- og tækniæfingar verða fyrst og fremst líkamsæfingar eða framkvæmdar með léttum handlóðum/ketilbjöllum og/eða prikum.

Rík áhersla verður á að kenna börnunum að beita sér rétt og gera allar æfingar vel og örugglega.

Tímarnir eru uppsettir þannig að við byrjum á upphitunarleikjum. Með þessu hefjum við tímann á skemmtun og gleði sem endurspeglast svo inn í æfinguna sjálfa. 
Við vinnum allt á sömu tímalengd svo börnin upplifi frekar að þau séu algerir jafningjar og við leggjum mikla áherslu á virðingu og vinsemd í garð þjálfara og annara iðkenda. 

Það er síðan tveir aukatímar þar sem fjölskyldan er velkomin á æfingu með börnunum. Þeir tímar verða auglýstir sérstaklega


Fyrir börn í 4.-6. bekk

2 Tímasetningar í boði:

Krakkahópur A -Mán og mið kl. 15:30-16:15

Krakkahópur B  -Þri og fim kl. 15:30-16:15 

VERÐ 69.990 kr.

Hægt er að nota frístundastyrk fyrir námskeiðið

Formleg skráning getur ekki tekið gildi fyrr en greitt er.
Við skráningu á námskeið samþykki ég skilmála Sporthússins

Þú gætir einnig haft áhuga á

Kaupa kort