Fjölbreyttir tímar
Þitt Form
Vilt þú komast í Þitt besta Form?
Hvað er Þitt Form:
Þitt Form er æfingakerfi fyrir þá sem eru tilbúnir að taka vel á því og uppskera árangur samkvæmt því. Þol, styrkur, kraftur, fjör, sviti, léttar teygjuæfingar og skemmtilegur félagsskapur.
Þú verður kominn í Þitt besta Form áður en þú veist af!
Þitt Form með Freyju Sig. byggist á einföldum æfingum sem miðast við að þátttakendur nái að hámarka brennslu og þjálfa upp þol og styrk á skömmum tíma. Mikil áhersla er lögð á að þjálfa allan líkamann. Gamla góða stöðvaþjálfunin í bland við skemmtilegar nýjungar og skorpuþjálfun.
Grunnbrennsla líkamans eykst og í hverjum tíma verður til hinn eftirsótti eftirbruni í líkamanum sem gerir það að verkum að hitaeiningabrennsla líkamans heldur áfram á auknum hraða í nokkra klukkustundir eftir að æfingu lýkur. Það er aldrei of seint að skora á sjálfa/n sig og komast í þitt besta form.
Þú mætir þegar þér hentar:
- Mánudagar: 06:00 / 08:45 / 12:00 / 17:15
- Þriðjudagar: 08:45 / 12:00 / 18:15
- Miðvikudagar: 06:00 / 08:45 / 12:00 / 17:15
- Fimmtudagar: 06:00 / 08:45 / 12:00 / 17:15 / 18:15
- Föstudagar: 08:45 / 12:00
- Laugadagar: 09:30
Myndir af aðstöðu