Technogym Checkup

Hvað er Technogym Checkup?

Við í Sporthúsinu erum spennt að kynna fyrir þér Checkup, glænýtt og byltingarkennt mælitæki frá Technogym sem nýtir sér hátækni myndavélar, gervigreind og 50 ára þekkingu Technogym til að mæla líkamlegt ástand fólks á sex þáttum. 

Ólíkt flestum öðrum mælitækjum í líkamsræktargeiranum, sem einblína flest á einhvern einn þátt heilsu og velferðar, mælir Checkup sex mismunandi þætti velferðar (e. wellness) sem allir eiga sinn þátt í að við lifum heilbrigðu og góðu lífi. 

Þættirnir eru liðleiki, jafnvægi, líkamssamsetning (vöðvamassi, vatnsmagn, fitumagn o.fl.), úthald (VO2 max), styrkur og hugræn skerpa.  

Niðurstöðurnar gefa hverjum og einum heildræna mynd af styrkleikum og veikleikum og eru frábær grundvöllur fyrir markmiðasetningu, áætlanagerð, markvissa þjálfun og hámarksbætingar. Þessi heildræna nálgun á heilsu og velferð er mjög í takt við áherslur samtímans, ekki síst þegar fólk eldist og verður meðvitaðra um þátt hreyfingar í að viðhalda heilsu.  

Sporthúsið býður upp á tvenns konar aðgang að Checkup. Annars vegar staka ástandsmælingu með aðstoð þjálfara eða starfsmanns, en hins vegar 12 vikna pakka sem byrjar og endar á Checkup mælingu, sérsniðið líkamsræktarprógramm til að vinna eftir á tímanum og stöðutékk með þjálfara á miðju tímabili. 

Hvernig fer mælingin fram?

Þjálfari tekur á móti þér og leiðir þig í gegnum allt ferlið. Technogym Checkup tækið notar háþróaða mælitækni og gervigreind til þess að meta líkamlegt og hugrænt ástand. Gott er að mæta í aðsniðnum fötum svo að myndavélin í tækinu geti greint hreyfingar á sem nákvæmastan hátt.

Tækið mælir:

  • Liðleika
  • Jafnvægi
  • Líkamssamsetningu
  • Hugræna færni
  • Styrk
  • Þol

Þolprófið samanstendur af hnébeygjuæfingum þar sem hjartsláttur er mældur fyrir, á meðan og eftir að æfingarútínunni er lokið. Einnig er hægt að taka þolprófið á þoltækjum sé þess óskað. Gott er því að mæta í æfingafatnaði og æfingaskóm með vatnsbrúsa meðferðis.

Kaupa kort