C-FUN
Cross-Functional
Ert þú ein/n af þeim sem skilur mikilvægi þess að byggja upp styrk, viðhalda hreyfigetu og úthaldi fyrir heilsu, vellíðan og lífið, en hefur ekki fundið líkamsræktina, þjálfarana eða æfingaumhverfið sem hentar þér?
Cross-Functional gæti verið svarið.
Á þessu 8 vikna námskeiði nýtum við áratuga reynslu af þrek- og styrktarþjálfun til að búa til markvisst, skemmtilegt og árangursríkt prógramm fyrir venjulegt fólk sem er EKKI að leita að keppni, afreksþjálfun, flóknum tæknilegum æfingum eða CrossFit.
Ef þú mætir vel í tímana þessar 8 vikur munu þjálfarar námskeiðsins sjá til þess að þú:
- Lærir og ástundar góða líkamsbeitingu og tækni í æfingum.
- Verðir 25–50% sterkari en þú varst í upphafi námskeiðs.
- Sjáir mælanlega aukningu á hreyfigetu (liðleika) þar sem þú þarft mest á því að halda.
- Styrkir kjarna, mjaðmir, bak og annað sem vinnur gegn lífstílstengdum stirðleika og verkjum.
- Aukir þrek og úthald um 25–50%.
- Lærir að taka tillit til gamalla meiðsla og vinna fram hjá þeim með aðlögunum eða breyttum æfingum.
- Setjir þér og vinnir að öðrum heilsutengdum markmiðum, t.d. varðandi mataræði, þyngd, svefn eða hugarró.
Allt þetta gerum við í lokuðum hópi, við bestu mögulegu aðstæður í heimsklassa aðstöðu CrossFit Sport og í frábærum félagsskap fólks á svipaðri heilsuferð.
Námskeiðið hefst og lýkur með mælingu á liðleika og jafnvægi í Technogym Checkup. Einnig er valkvætt að mæla líkamssamsetningu. Við munum auk þess fylgjast náið með framförum í styrk og þreki meðan á námskeiðinu stendur.
Tímarnir eru 60 mínútna langir og samanstanda af góðri upphitun og blöndu af fjölbreyttri og skemmtilegri styrktar-, þol- og liðleikaþjálfun sem sniðin verður að getu og markmiðum hvers og eins.
Þjálfarar námskeiðsins
Haraldur Holgersson
- B.Sc. í íþróttafræði og CrossFit Level 1
- 10 ára þjálfarareynsla
- Áhersla á að skapa umhverfi þar sem allir geta notið hreyfingar
- Þjálfari og skipuleggjandi námskeiðsins
Steinunn Anna Svansdóttir
- B.Sc. í sálfræði og M.Sc. í íþróttavísindum og þjálfun
- 5 ára þjálfarareynsla
- Áhersla á heildræna heilsu og frammistöðu
- Þjálfari og skipuleggjandi námskeiðsins
Ægir Björn Gunnsteinsson
- B.Sc. í sálfræði, CrossFit Level 1 & 2 og Meistaranemi í klínískri sálfræði
- 10 ára þjálfarareynsla
- Áhersla á öruggar hreyfingar og styrk
- Þjálfari námskeiðsins
Næsta námskeið
Næsta námskeið hefst 19.október og stendur yfir í 8 vikur.
Æft er þrisvar í viku: mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.
Hægt er að velja um tvær tímasetningar:
- 06:00–07:00
- 17:15–18:15
Verð: 54.900 kr.
Meðlimaverð: 39.990 kr.
Meðlimaverð CrossFit áskrifenda: 19.990 kr.
Innifalið:
- 8 vikna markvisst námskeið með sama hópi
- Þrjár æfingar í viku (mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga)
- Markviss styrktarþjálfun
- Betri hreyfigeta og liðleiki
- Persónuleg leiðsögn og örugg líkamsbeiting
- Technogym mæling í byrjun og lok námskeiðs
- Aðgangur að öllu í Sporthúsinu
Þú gætir einnig haft áhuga á