Cross-Functional

Product information

‌

Short description

Innifalið:
- 8 vikna markvisst námskeið með sama hópi
- Þrjár æfingar í viku (mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga)
- Markviss styrktarþjálfun
- Betri hreyfigeta og liðleiki
- Persónuleg leiðsögn og örugg líkamsbeiting
- Technogym mæling í byrjun og lok námskeiðs  
- Aðgangur að öllu í Sporthúsinu

‌

Description

Cross-Functional

 

Ert þú ein/n af þeim sem skilur mikilvægi þess að byggja upp styrk, viðhalda hreyfigetu og úthaldi fyrir heilsu, vellíðan og lífið, en hefur ekki fundið líkamsræktina, þjálfarana eða æfingaumhverfið sem hentar þér?

Cross-Functional gæti verið svarið.

Á þessu 8 vikna námskeiði nýtum við áratuga reynslu af þrek- og styrktarþjálfun til að búa til markvisst, skemmtilegt og árangursríkt prógramm fyrir venjulegt fólk sem er EKKI að leita að keppni, afreksþjálfun, flóknum tæknilegum æfingum eða CrossFit.

Ef þú mætir vel í tímana þessar 8 vikur munu þjálfarar námskeiðsins sjá til þess að þú:

  • Lærir og ástundar góða líkamsbeitingu og tækni í æfingum.
  • Verðir 25–50% sterkari en þú varst í upphafi námskeiðs.
  • Sjáir mælanlega aukningu á hreyfigetu (liðleika) þar sem þú þarft mest á því að halda.
  • Styrkir kjarna, mjaðmir, bak og annað sem vinnur gegn lífstílstengdum stirðleika og verkjum.
  • Aukir þrek og úthald um 25–50%.
  • Lærir að taka tillit til gamalla meiðsla og vinna fram hjá þeim með aðlögunum eða breyttum æfingum.
  • Setjir þér og vinnir að öðrum heilsutengdum markmiðum, t.d. varðandi mataræði, þyngd, svefn eða hugarró.

 

Allt þetta gerum við í lokuðum hópi, við bestu mögulegu aðstæður í heimsklassa aðstöðu CrossFit Sport og í frábærum félagsskap fólks á svipaðri heilsuferð.

Námskeiðið hefst og lýkur með mælingu á liðleika og jafnvægi í Technogym Checkup. Einnig er valkvætt að mæla líkamssamsetningu. Við munum auk þess fylgjast náið með framförum í styrk og þreki meðan á námskeiðinu stendur.

Tímarnir eru 60 mínútna langir og samanstanda af góðri upphitun og blöndu af fjölbreyttri og skemmtilegri styrktar-, þol- og liðleikaþjálfun sem sniðin verður að getu og markmiðum hvers og eins.

 

Þjálfarar námskeiðsins

 

Haraldur Holgersson

  • B.Sc. í íþróttafræði og CrossFit Level 1
  • 10 ára þjálfarareynsla
  • Áhersla á að skapa umhverfi þar sem allir geta notið hreyfingar
  • Þjálfari og skipuleggjandi námskeiðsins

 

Steinunn Anna Svansdóttir

  • B.Sc. í sálfræði og M.Sc. í íþróttavísindum og þjálfun
  • 5 ára þjálfarareynsla
  • Áhersla á heildræna heilsu og frammistöðu
  • Þjálfari og skipuleggjandi námskeiðsins

 

Ægir Björn Gunnsteinsson

  • B.Sc. í sálfræði, CrossFit Level 1 & 2 og Meistaranemi í klínískri sálfræði
  • 10 ára þjálfarareynsla
  • Áhersla á öruggar hreyfingar og styrk
  • Þjálfari námskeiðsins

 

Næsta námskeið

Næsta námskeið hefst 19.október og stendur yfir í 8 vikur.

Æft er þrisvar í viku: mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.

Hægt er að velja um tvær tímasetningar:

  • 06:00–07:00
  • 17:15–18:15

 

Verð: 54.900 kr.

Meðlimaverð: 39.990 kr.

Meðlimaverð CrossFit áskrifenda: 19.990 kr.

 

Kaupa kort