Hóptímaþjálfara námskeið Sporthússins

Product information


Short description

Farið í eftirfarandi:

  • Tækni kennsla í hóptímum, hvað skiptir mestu máli, hvernig kennum við hóp og höldum gæðunum í lagi á sama tíma og við höldum flæði í tímanum.
  • Hvernig við byggjum upp tíma, tónlist og æfingar.
  • Hvernig þú byggir upp vinsæla tíma.
  • Finnum styrkleika hvers og eins og finnum leiðir til að nýta þá sem best í kennslu. 
  • Hvað þarf til að verða vinsæll þjálfari?
  • Hvernig tengjumst við fólkinu sem mætir hjá okkur? 

Description

Hóptímaþjálfara námskeið Sporthússin verður haldið 13. og 14. desember

Vegna aukinnar eftirspurnar í hópatíma Sporthússins ætlum við að bæta við tímum og þjálfurum. 
Sporthúsið auglýsir því eftir áhugasömum einstaklingum til að bætast i þjálfara hópinn okkar.

Kennsla verður:
13. desember 17:00 -21:00
14. desember  12:00 -17:00

Verð: 9.990 kr.

 

Námskeiðið hentar þeim sem hafa áhuga á því að starfa sem hóptímaþjálfarar í Sporthúsinu, þeim sem vilja halda áfram að bæta sig í sínu þjálfarafagi og/eða þeim sem vilja fara aðeins út fyrir þægindarammann.

Þjálfari námskeiðs:
Guðríður Torfadóttir (Gurrý) sem hefur yfir 20 ára reynslu í hóptímakennslu og haldið fjölda þjálfaranámskeiða.
Gestakennarar: Reyndir þjálfarar Sporthússins kíkja í heimsókn og deila sinni sérþekkingu og reynslu.  

Kaupa kort