Dansskóli Birnu Björns

Product information



Description

15 vikna vorönn hefst 12.janúar 2026.

Dansskólinn býður upp á markvisst, vandað og fjölbreytt dansnám. Allir kennarar skólans eru vel þjálfaðir, með margra ára reynslu af dansnámi, kennslu og kóreógrafíu. Kenndir eru ýmsir dansstílar, má þar helst nefna commercial, jazz, lyrical, contemporary og musical theatre. Aldursflokkar 3 ára og eldri.

 

Frekari upplýsingar má sjá á https://www.dansskolibb.is/

 

Meðal þess sem nemendur læra má nefna grunntækni, stökk, hringi, samsettar tækniæfingar og dansrútínur, en sérstök áhersla er lög á að nemendur kynnist sem flestum dansstílum. Einnig er unnið mikið með sviðsframkomu og leikræna tjáningu, en dansgleði og skemmtun er höfð í fyrirrúmi. Við leggjum ríka áherslu á að nemendum líði vel í skólanum og að það sé búið til andrúmsloft þar sem allir fá að njóta sín og ná markmiðum sínum.

Hópar:

Barnadansar 3-5 ára / árg. 2020-2022 / lau kl. 11:15-12:00 / verð 42.900 kr.
 
6-8 ára / árg. 2017-2019 / þri + fim kl. 16:30-17:20 / verð 76.900 kr.
 
9-11 ára / árg. 2014-2016 / þri + fim kl. 15:30-16:30 / verð 76.900 kr.
 
9-11 ára + tæknitími / þri + fim kl. 15:30-16:30 og fim kl. 17:20-18:20 / verð 103.800 kr. 
 
12-14 ára / árg. 2011-2013 / þri + fim kl. 18:20-19:20 / verð 76.900 kr.
 
12-14 ára + tæknitími / þri + fim kl. 18:20-19:20 og fim kl. 17:20-18:20 / verð 103.800 kr. 
 
15+ ára / árg. 2010 og eldri / þri + fim kl. 19:20-20:20 / verð 76.900 kr.
 
15+ ára + tæknitími / þri + fim kl. 19:20-20:20 og fim kl. 17:20-18:20 / verð 103.800 kr. 
 
Dansþrek 30+ / mán kl. 19:30-20:45 / verð 56.900 kr.
 
Tæknitími / árg. 2016 og eldri / fim kl. 17:20-18:20 / verð 26.900 kr. 
 
Söngleikjadeild - K1 - Kópavogur yngri (8-10 ára) / árg. 2015-2017 / mán kl. 16:15-17:15 / verð 56.900 kr.
 
Söngleikjadeild - K2 - Kópavogur eldri (11+ ára) / árg. 2014 og eldri / mán + mið kl. 15:15-16:15 / verð 76.900 kr. 
 
Nemendur sem æfa bæði í danshóp og söngleikjadeild fá tæknitíma námskeið frítt.

 

 

Hægt er að nýta frístundastyrk fyrir þessi námskeið.

 

Kaupa kort