Lyftingarnámskeið
Product information
Short description
Innifalið í námskeiðinu er:
- Tvær æfingar á viku undir handleiðslu þjálfara LFK (Lyftingafélag Kópavogs)
- Aðgangur að báðum stöðvum Sporthússins
- Aðgangur að tækjasal Sporthússins og pottasvæði
- Aðgangur að öllum opnum tímum
Description
Ólympískar- og Kraftlyftingar
Um er að ræða námskeið þar sem farið verður yfir grunnatriði og tækni í bæði ólympískum lyftingum, jafnhendingu (clean & jerk) og snörun (snatch) sem og keppnislyftur í kraftlyftingum, hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu.
Æfingarnar eru tvískiptar og er fólki velkomið að leggja meiri áherslu á aðra hvora íþróttina.
Þér er mætt á þeim stað sem þú ert og öll velkomin.
13 ára aldurstakmark er á þetta námskeið
Námskeiðið er kennt þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:30-19:45 og er í 4 vikur.
Kennari námskeiðs eru Anna Guðný Elvarsdóttir
Anna Guðný Elvarsdóttir, styrktarþjálfari. Stjórnarmeðlimur og þjálfari Lyftingafélag Kópavogs og hóptímakennari í Sporthúsinu. Anna hefur þjálfað og kennt ólympískar- og kraftlyftingar í mörg ár og kennt námskeið í Sporthúsinu síðan 2020.
Verð: 29.990 kr.
Meðlimaverð: 20.610 kr.
