Hot Sculpt

Hot Sculpt er fjölbreyttur og krefjandi hóptími sem fer fram í heitum sal þar sem áhersla er lögð á styrk, úthald, líkamsvitund og betri líkamsstöðu.

Í tímunum blandast saman æfingar úr barre, pilates og jóga ásamt markvissum styrktaræfingum með léttum lóðum, eigin líkamsþyngd og fjölbreyttum æfingatækjum. Unnið er með allan líkamann í gegnum fjölbreyttar æfingar þar sem lögð er áhersla á góða tækni, stjórn og nákvæmar hreyfingar.

Námskeiðið er kennt tvisvar í viku og hentar bæði byrjendum og þeim sem eru lengra komnir. Æfingarnar eru fjölbreyttar og hægt er að aðlaga þær að getu hvers og eins.

Hot Sculpt er frábær leið til að byggja upp styrk, bæta líkamsvitund og gefa sér tíma til að hreyfa sig í notalegu og hvetjandi umhverfi.

Námskeiðið er 4 vikur og er kennt þrið og fim 17:30-18:20

Verð: 26.900 kr

Meðlimaverð: 20.990 kr.

Þú gætir einnig haft áhuga á

Kaupa kort