9. nóvember 2026
9. nóvember 2026
Reformer Pilates í Kópavogi
Reformer Pilates by Technogym í Sporthúsinu Kópavogi
Nýtt hjá Sporthúsinu!
Við kynnum Reformer Pilates by Technogym, nýja Reformer Pilates aðstöðu í Sporthúsinu í Kópavogi, með nýjum Technogym Reform tækjum.
Fallegt og vandað rými þar sem þú getur notið þess að æfa í notalegu umhverfi.
Reformer Pilates er æfingaform þar sem notast er við sérstök Reformer tæki með fjöðrum, hreyfanlegum sleða og stillanlegri mótstöðu.
Æfingarnar leggja áherslu á styrk, stöðugleika, liðleika og líkamsbeitingu. Með fjölbreyttum æfingum er unnið með allan líkamann, auk þess sem áhersla er lögð á stjórn, jafnvægi og meðvitaðar hreyfingar.
Reformer Pilates býður upp á fjölbreytta möguleika í þjálfun og hentar fólki með ólíka reynslu af hreyfingu. Æfingarnar má aðlaga að getu og þörfum hvers og eins, hvort sem þú ert byrjandi eða hefur reynslu af Pilates.
Við bjóðum upp á ókeypis kynningartíma fyrir alla sem vilja koma og prófa vikuna 9.-15.nóvember. Skráning fer fram í Technogym appinu, en það má hlaða því niður hér. Upplýsingar um hóptímabókunarkerfið má finna hér.
