10. september 2026

Nýtt bókunarkerfi fyrir hóptíma

Sporthúsið hefur tekið í notkun nýtt bókunarkerfi fyrir opna hóptíma í Technogym appinu frá og með 10.september.
Notið þennan hlekk til þess að hlaða niður appinu fyrir Sporthúsið í Kópavogi:
Notið þennan hlekk til þess að hlaða niður appinu fyrir Sporthúsið í Reykjanesbæ:

Eftir innskráningu í appið þarf að smella á "Sporthúsið" í valmyndinni neðst á skjánum og svo "Hóptímabókanir" efst til hægri á þeirri síðu. Leyfa þarf tilkynningar (notifications) frá appinu svo að tilkynningar vegna biðlista komist til skila.
Einnig er hægt að nota vefútgáfu til þess að skrá sig í tíma hér, en nauðsynlegt er að skrá sig inn með sama netfangi og lykilorði og í Technogym appinu.
Kaupa kort