14. apríl 2025

Padel

Sporthúsinu Kópavogi

Padel opnar í Sporthúsinu

Þann 11. ágúst næstkomandi mun Sporthúsið opna fjóra glæsilega Padel velli. Þar af verða þrír tvíliðaleiksvellir með löglegri keppnishæð (11-12 metrar) og einn einliðaleiksvöllur, auk þægilegrar félagsaðstöðu fyrir iðkendur.

Vellirnir verða opnaðir þar sem verið hafa knattspyrnuvellir til fjölda ára, en þeim verður lokað í lok júní. Framkvæmdir við Padel hefjast 1. júlí og er markmiðið að spila á völlunum 11. ágúst ´25.

Padel er ört vaxandi íþrótt sem sameinar eiginleika úr tennis og skvass (e. squash). Hún er leikinn á minni velli en tennis, með veggjum og sérstökum spaða, sem gerir hana aðgengilega og skemmtilega fyrir breiðan hóp iðkenda. Reglurnar eru einfaldar og leikurinn er oftast spilaður í tvíliða, sem eykur félagslega þáttinn í íþróttinni.

Padel hentar fólki á öllum aldri og á mismunandi getustigum. Vegna minni krafna um styrk og úthald en í mörgum öðrum boltaíþróttum, geta byrjendur komist fljótt inn í leikinn og haft gaman af honum frá fyrstu mínútu. Við teljum Padel eiga eftir að passa mjög vel inní fjölbreytt þjónustuframboð Sporthússins.

Aldur iðkenda spannar allt frá börnum upp í eldri borgara. Kynjahlutfallið er nokkuð jafnt, þó að karlar séu enn í meirihluta í keppnishaldi. Hins vegar hefur þátttaka kvenna aukist jafnt og þétt og fjölmargir kvennaklúbbar og mót hafa sprottið upp.

Á heimsvísu hefur Padel notið mikilla vinsælda síðustu ár, sérstaklega í Suður-Ameríku og Evrópu. Spánn hefur verið leiðandi í þróun og útbreiðslu íþróttarinnar, þar sem Padel er nú ein vinsælasta íþróttin í landinu. Vinsældir hennar eru einnig í örum vexti í öðrum löndum, þar á meðal Svíþjóð, Bretlandi og Bandaríkjunum.

Padel er víða orðin aðgengileg afþreying fyrir fólk á öllum aldri og sífellt aukin áhersla hefur verið lögð á mótahald og þjálfun bæði barna og fullorðinna víða um heim, enda er stefnt að því að Padel verði keppnisgrein á sumarólympíleikunum 2032.

Á Íslandi hefur Padel náð miklum vinsældum á skömmum tíma. Fyrsta og eina aðstaðan opnaði í Tennishöllinni árið 2020 og síðan þá hefur áhuginn aukist hratt. Mikill fjöldi Íslendinga hefur prófað íþróttina og margir vilja stunda hana reglulega, en vegna mikils skorts á völlum til þessa hafa vaxtamöguleikar hennar verið takmarkaðir.

Ljóst er að með tilkomu þessara nýju valla mun aðstaða til Padel iðkunar á landinu batna mikið og verða til þess að að iðkendum fjölgi verulega.

Áhugasamir Padel iðkendur munu geta fest sér vikulega tíma á völlunum, sem og bókað staka lausa tíma en hver tími verður 45 mínútur að lengd. Forsvarsmaður hvers hóps mun fá sendan QR kóða daginn fyrir tíma og mun hann veita aðgang að Sporthúsinu klukkustund fyrir bókaðar tíma, þannig að þátttakendur geta hitað upp í tækjasal Sporthússins áður en spilað er. Gestir geta að sjálfsögðu einnig notað búningsaðstöðu Sporthússins og farið í potta og gufu að leik loknum.

Fyrst um sinn fylgir opnunartími vallanna opnunartíma Sporthússins. Byrjað er að taka við óskum um fasta tíma á padel@sporthusid.is

Padel skemmtileg, aðgengileg og félagsleg íþrótt sem hentar fjölbreyttum hópi fólks og nýtur sífellt meiri vinsælda um allan heim – þar á meðal á Íslandi. Fjórir glænýjir Padel vellir í glæsilegri innanhúss aðstöðu munu gjörbreyta aðstöðu Padel iðkenda á Íslandi til hins betra.

Við í Sporthúsinu erum mjög spennt fyrir þessari nýjung, og þó það verði sannarlega mikil eftirsjá af fótboltavöllunum erum við viss um þessi breyting verði til þess að enn fleiri iðkendur en áður finni sér farveg í skemmtilegri heilsurækt undir þaki Sporthússins.

Kaupa kort