Power Pilates
Product information
Short description
Innifalið í námskeiðinu er:
- Tveir tímar í viku undir handleiðslu þjálfara
- Aðgangur að báðum stöðvum Sporthússins
- Aðgangur að tækjasal Sporthússins og pottasvæði
- Aðgangur að öllum opnum tímum
- Aðgangur að lokuðum FB hóp
Description
Power Pilates eru kröftugar Pilates- og barre æfingar ásamt öðrum styrktaræfingum. Unnið er með alla vöðva líkamans með ríkri áherslu á djúpvöðva. Djúpvöðvarnir liggja næst hryggsúlunni og eiga því að halda okkur í réttri líkamsstöðu. Æfingarnar auka styrk, liðleika og líkamsvitund ásamt því að bæta líkamsstöðuna.
Kennd er rétt beiting öndunar sem hjálpar enn frekar við að tengja við djúpvöðvana, ásamt því að losa um stress/streitu og auka einbeitingu.
Æfingarnar henta byrjendum sem lengra komnum þar sem unnið með mismunandi erfiðleikastig.
Unnið er í 34-36 gráðu heitum sal með létt hand-og ökklalóð, teygjur og litla pilates bolta. Einnig er hægt að vinna án allra áhalda og á eigin getu.
Þetta 6 vikna námskeið er fyrir konur jafnt sem karla. Næsta námskeið hefst 26.mars og er kennt á tveimur mismunandi tímasetningum. 16:30-17:20 og 17:30-18:20 á þriðjudögum og fimmtudögum.
Verð: 31.990 kr,-
Meðlimaverð: 19.710 kr,-
