Hlaupaæfing Bootcamp
-Hóptímakennari
Hlaupahópur Bootcamp er alla mánudaga kl 17:30 og er æfingin í ca klukkutíma. Hópurinn hittist í móttöku Sporthússins þar sem þú hittir þjálfara og hann fer yfir með þér hlaupaæfingu dagsins. Hópurinn hleypur saman og þjálfari leiðir hópinn. Lögð er áhersla á að taka gæðaæfingar, tempó æfingar, spretti og brekkur. Æfingar sem er miklu auðveldara og skemmtilegra að taka í hóp með öðrum hlaupurum. Allir korthafar Sporthússins eru velkomnir hvort sem þeir eru byrjendur eða lengra komnir hlauparar.