Heilsurækt fyrir konur

Hefur þú gaman af fjölbreyttri hreyfingu sem miðar af því að efla styrk, þol og liðleika? 
  • 7 vikna námskeiðið
  • kennt mán og mið kl. 16:25

 

Vilt þú efla heilsuna?

Góð heilsa er það mikilvægasta sem þú getur átt. 

Á námskeiðinu Heilsurækt fyrir konur er markmiðið að efla heilsu allra þátttakenda og því er mikilvægt að miða æfingar að getu hverrar og einnar.  Allar geta eitthvað það er nokkuð ljóst, en þjálfari mun styðja þig í að komast yfir hugsanlegar hindranir sem þú upplifir þegar þú hugsar um líkamsrækt.  

Heilsuræktartímarnir innihalda fjölbreyttar æfingar sem munu auka þrek, þol, styrk og liðleika iðkandans.  

Unnið verður með eigin líkamsþyngd, lóð, bjöllur, palla, teygjur, slökun og margt fleirra skemmtilegt eins og hressandi þolfimirútínur og léttan dans.  

Lögð verður áhersla á vellíðan og skemmtilega uppbyggjandi tíma þar sem allar fá að njóta sín!

 

Ef þig langar að æfa með hressum konum sem elska að hafa gaman þá ættir þú að skrá þig á þetta námskeið!

 

Innifalið í námskeiðinu er:

  • Tvær æfingar í viku undir handleiðslu þjálfara
  • Aðgangur að báðum stöðvum Sporthússins 
  • Aðgangur að tækjasal Sporthússins og Spa
  • Aðgangur að öllum opnum tímum Sporthússins 
 

Kennari námskeiðis er Kristjana Hildur Gunnarsdóttir (Kiddý)

Þú gætir einnig haft áhuga á

Kaupa kort