Vertu með

okkur í sumar

TÝR MMA

TÝR er bardagaíþróttafélag sem býður upp á Kickbox, Brasilískt Jiu Jitsu (BJJ), Mixed Martial Arts (MMA) og barna- og unglinga þjálfun. Einnig bjóðum við reglulega upp á námskeið í varnartökum og neyðarvörn sem byggir á ISR Matrix kerfinu.

Fjölbreytt reynsla og þekking

Þjálfarar TÝR hafa fjölbreytta reynslu af bardagaíþróttum og koma allir að borðinu með sína sérþekkingu. Meðal þjálfara eru svartbeltingar í BJJ, íslandsmeistarar og verðlaunahafar á stærri mótum úti í heimi á sínu sviði (Kickbox, BJJ), og MMA þjálfarar á heimsmælikvarða. Allir búa yfir margra ára (jafnvel áratuga) reynslu af iðkun og þjálfun sinnar íþróttar.

Aðstaða

TÝR hefur sinn eigin sal í Sporthúsinu þar sem öll þjálfun fer fram en allir iðkendur Týs hafa aðgang að tækjasal Sporthússins og fjölda hóptíma sem Sporthúsið hefur upp á að bjóða.

Samheldni

TÝR hjálpast að og byggjum hvert annað upp. Það er okkur mjög mikilvægt öllum líði eins og þeir séu velkomnir og að allir sýni æfingarfélögum sínum vinsemd og virðingu.

Ábyrgð

Iðkendur Týs verða að fylgja ströngum skilyrðum er varða framkomu þeirra og hegðun utan félagsins. Þ.e. stjórn Týs áskilur sér réttinn til að vísa frá þeim sem beitir ofbeldi eða á nokkurn hátt misbeitir því sem hann hefur lært hjá félaginu. Bardagalistum fylgir ábyrgð. Iðkendum Týs ber að axla hana.

Hér getur þú séð heimasíðu Týr MMA

Iðkendur Týr MMA hafa aðgang að öllum CAT(lokaðir tímar fyrir KVK), MMA, BJJ og Nogi tímum í sundartöflu. Barnatímar eru kenndir sem námskeið.

TímasetningMánudagarÞriðjudagarMiðvikudagarFimmtudagarFöstudagarTímasetningLaugardagar
16:30-17:15BÖRN 6-12 ÁRABÖRN 6-12 ÁRA12:00BJJ
17:15-18:15CATMMACAT MMA
18:15-19:15BJJNOGINOGIBJJ
19:15-20:15TÝR 101TÝR 101TÝR 101

Kaupa kort