Infrared Yin Yoga

Bajka TalachHóptímakennari

Yin Yoga a er mjúkt jóga þar sem unnið er á liðamótum, vöðvafestingum og tengivef. Áhersla er á algera kyrrð, að vera í núinu og auka meðvitund okkar um líðan okkar og líkamsvitund. Flestar stöður í Yin Yoga eru gerðar sitjandi eða liggjandi og er þessi tegund því tilvalin fyrir alla. Stöðunum er haldið í 3 – 10 mínútur með það að markmiði að efla orkuflæði og næra djúpvefi, bein og liðamót. Notast er við kubba til stuðnings eftir þörfum. Með því að stunda Yin jóga náum við betra jafnvægi á líkamann, komum í veg fyrir samfall, ótímabæra hrörnun, samgróning og aukum rakaflæðið. Yin Yoga styrkir og lengir vöðva meðan önnur hreyfing (yang) styrkir og á það til að stytta vöðvana. Hreyfigeta eykst með því að stunda Yin með Yang og er frábær viðbót við aðra líkamsrækt auk þess sem við styrkjum huga og sál.

Tímarnir eru kenndir á ensku og eru leiddir áfram af frábærum og reynslumiklum jógakennara Bajka Talach

Fyrirkomulag hópatíma:

  • Skráning í tíma opnar 72 klst. áður en tíminn hefst.
  • Ef tíminn er fullbókaður er hægt að skrá sig á biðlista, þegar pláss losnar fá iðkendur á biðlista tölvupóst en þá gildir fyrstur kemur fyrstur fær.
  • Lágmarksskráning er í alla tíma, ef lágmarksskráning næst ekki fellur tíminn sjálfkrafa niður. Skráðir þátttakendur fá tilkynningu í tölvupósti vegna þessa. 
    • Morguntímar 06:00-08:00 falla niður kl. 22 kvöldinu áður.
    • Aðrir tímar falla niður 2 klst. áður en tíminn á að hefjast.
  • Í öllum heitum tímum er skylda að vera með handklæði yfir dýnunni eða koma með eigin dýnu.

 

Næstu tímar

Kaupa kort