Pilé - Ballet X Elite
15 vikna námskeið hefst 4.september
Kennt mánudagar 15:00-17:00, þriðjudaga 15:00-17:00, miðvikudaga 15:00-17:00, föstudaga 15:00-18:00, laugardaga 12:00-15:00, sunnudaga 10:00-13:00.
Klassískur ballet. Kennt er eftir Royal Academy of Dancing, Russian Method og Plié Method. Áhersla er lögð á uppbyggilegar kennsluaðferðir og jákvæða líkamsímynd.
Hópurinn er fyrir nemendur sem vilja taka dansnámið skrefinu lengra og vilja æfa meira.
Hópurinn æfir 15 klst í viku, tækni, táskór, lyrical, teygjur ofl. Inntökupróf er fyrir nýja nemendur inn í deildina.
Inntökupróf verður í vikunni 14.-18.ágúst.
Best er að nemandi klæðist þröngum og þægilegum fatnaði og séu berfætt. Ekki er gott ef fatnaðurinn er of víður eða of síður.
Hár greitt frá andliti. Ef hár er sítt þarf aðhafa það í hnút.
Ekki er gert ráð fyrir að foreldrar séu með í tímanum.
Verð: 225.000
Hægt er að ráðstafa frístundastyrk HÉR!
Þú gætir einnig haft áhuga á