5. febrúar 2023
5. febrúar 2023
Skill Row í Sporthúsinu Kópavogi
Stórskemmtilegir róðratímar sem eiga sér enga hliðstæðu á Íslandi
Í tímunum eru notaðar róðravélar frá Technogym sem eru hannaðar til þess að líkja eftir róðri á vatni. Við róum eftir "SPM" eða róðratökum á mínútu.
Tímarnir eru í heildina 30-45 mínútur og einkennast af mikilli stemningu og ákvefð sem reynir á alla vöðvahópa líkamans og eykur úthald. Við róður erum við ekki að upplifa högg á liði og hentar þessi tegund þrekþjálfunnar því flestum. Þrekþjálfun eykur þol sem styrkir hjarta- og æðakerfið, eykur grunnbrennslu okkar og súrefnisupptöku.
Komdu og prófaðu þessa nýjung í líkamsrækt!
