Leifur Geir Hafsteinsson

Leifur Geir er eigandi og yfirþjálfari CrossFit Sport. Fyrstu ár CrossFit Sport starfaði hann einnig sem ráðgjafi hjá Hagvangi í mannauðsmálum og sem dósent við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, en hefur frá því snemma árs 2011 einbeitt sér alfarið að rekstri og uppbyggingu CrossFit Sport.

Menntun:
* Doktorspróf í vinnusálfræði, með áherslu á hvatningu og markmiðasetningu frá Virginia Tech, 2004
* Uppeldis- og kennslufræði frá HÍ 1995
* BS í eðlisfræði frá HÍ 1994
* Stúdent frá MH vor 1989

Þjálfunarréttindi:
* CrossFit Level 1 þjálfari, ágúst 2008
* CrossFit gymnastics, september 2010
* Mobility, desember 2010 með Jami Tikkanen
* MaxBells Level 1, september 2009
* MaxBells Level 2, júní 2010
* MaxBells Joint mobility, júní 2010
* MaxBells Body Weight, júní 2011
* ACE einkaþjálfarapróf, mars 2008
* Ýmis námskeið, m.a. hjá Lee Taft, Mike Boyle o.fl.

Þjálfunarreynsla:
* Aðalþjálfari hjá CrossFit Sport síðan í júlí 2008. Hefur á þeim tíma þjálfað mörg þúsund CrossFit tíma.
* Spinning og þrekþjálfun í Sporthúsinu frá 2005-2008.
* Þjálfaði hóp til þátttöku í Þrekmeistaranum 2007 og 2008.
* Spinning kennsla í New Town Fitness, Blacksburg, Virginíu 2003-2004.
* Spinning og RPM kennsla í gamla Þokkabót í Vesturbænum 1999-2000.