Jóhanna Karlsdóttir

Hot Yoga kennari

Jóhanna Karlsdóttir lauk fyrsta yogakennaranáminu 200 tíma réttindum
árið 2008 í Hot Yoga hjá Absolute Yoga Samui í Thailandi.

Jóhanna byrjaði að kenna hot yoga fyrst allra á Íslandi í janúar 2009 og kenndi á nokkrum stöðumtil að byrja með, meðal annars í World Class, Grand Spa og Yoga Shala. Í september 2009 færði Jóhanna sig alfarið yfir til Sporthússins þar sem hún fékk tækifæri til þess að taka Hot Yoga skrefinu lengra í sérútbúnum sal með innbyggðu hitakerfi. Þar rekur Jóhanna Hot Yoga ehf. og sér alfarið um alla kennslu og hefur umsjón með henni ásamt þremur öðrum starfsmönnum hennar í heitasta sal landsins í Sporthúsinu.

Árið 2010 sótti hún stutt námskeið hjá Bikram Choudhury í Barcelona. Þar var farið í svokallaða advanced rútínu í Bikram Yoga. Árið 2010 lauk hún einnig 500 tíma kennaranámi hjá AbsoluteYoga og Yogasana með Michel Besnard og fleirum. Námið er kallað "Advanced" kennaranám og innihélt Ashtanga yoga, women´s yoga, Yin yoga og Restorative yoga.