Biggest Loser keppni 9. janúar í Sporthúsinu

Peningaverðlaun fyrir 1. sætið

fat loss logo
28. des 2011

Keppnin hefst mánudaginn 9. janúar 2012

Mæling fer fram 9. janúar 2012 kl: 19.30 - 21.30 í sal 10
Skráningu lýkur 9. janúar
Þátttökugjald = 5.000 kr. og greiðist í afgreislu Sporthússins
Keppnin byggist á því hver missir mestu fituprósentu á 12 vikum; 9. janúar - 7. apríl
Aðeins meðlimir Sporthússins hafa þátttökurétt
Mælingar fara fram 3 á tímabilinu; 9. janúar, 20. febrúar og 2. apríl
Úrslit verða tilkynnt eigi síður en 7. apríl


Reglur

1. Þátttakendur geta skráð sig áður en keppni hefst eða á fyrsta degi fitumælingar, þann 9. Janúar 2012. Í umsókninni munu þátttakendur skrifa undir ábyrgðarfyrringu sem staðfestir að það séu engar ástæður fyrir því að þeir geti ekki tekið þátt í keppninni, s.s. veikindi eða slæmt líkamlegt ástand. Fjórar myndir verða teknar af hverjum þátttakanda á baðfötum eða nærfötum.

2. Börn innan 18 ára mega taka þátt í keppninni ef að foreldri eða forráðamaður skrifar undir ábyrgðarfyrringu fyrir þau (sjá grein 1) og að allaveganna annað foreldrið/forráðamaður tekur þátt í keppninni með þeim.

3. Fitumælingar verða teknar þrisvar á meðan þessari 12 vikna keppni stendur. Fyrsti mælingardagur og byrjunardagur keppninnar er mánudagurinn 9. janúar 2012. Annar dagur mælingar er mánudagurinn 20. febrúar 2012. Síðasti dagur mælingar er svo í enda keppninnar mánudaginn 2. apríl 2012. Á fyrsta mælingardegi, mánudeginum 9. janúar 2012, verða mælingar teknar frá klukkan 19:30 til 21:30 í sal 10 í Sporthúsinu Kópavogi og munu seinni mælingar á dögunum 20. febrúar og 2. apríl einnig fara fram á þessum tíma.

4. Þátttakendur geta byrjað í keppninni eftir mánudaginn 9. janúar 2012 en engar mælingar verða teknar fyrir þá dagsetningu.

5. Þyngd verður mæld með vigt Sporthúsins og fitumælingar verða teknar af Gemmu Magnússon með fitumælingartæki Sporthúsins. Líkamsbygging verður svo reiknuð út með "Linear software" sem notar Jackson og Pollock 7-site aðferðina. Nauðsynleg líkamsfita fyrir konur er 10% og 2% fyrir karlmenn. Þessar prósentur verða notaðar sem staðal prósenta, og eru ALLS EKKI þær prósentur sem þátttakendur eiga að miða sig við eða reyna að ná. Heldur eru þær einungis notaðar sem almenn viðmiðun.

6. Óleyfilegt er að fara í fitusog eða aðrar fituminnkandi aðgerðir meðan á keppni stendur.

7. Rafrænt fréttabréf verður sent öllum þátttakendum í byrjun keppninnar með góðum ráðum fyrir æfingar og matarræði. Svo sex vikum eftir byrjun keppninar verður mun fréttabréfið innihalda hvar allir þátttakendur standa í keppninni. Öll samskipti milli mælinga munu fara fram í gegnum vefpóst og fréttabréfin. Vinsamlegst athugið að gefa upp réttann vefpóst.

8. Líkami og Lífstíll (Sci-Mx) munu bjóða uppá sérstakann "fitubrennslupakka" fyrir alla þáttakendur með góðum afslætti.

9. Sigurvegarar verða látnir vita af úrslitunum í gegnum netfangið sem þeir hafa gefið upp og verðlaunin verða afhent eftir laugardaginn 7. apríl 2012. Gemma Magnússon sér um að veita verðlaunin.

10. Keppnin er aðeins opin meðlimum og starfsfólki Sporthúsins. Þeir sem vilja taka þátt verða að gerast meðlimir eða skrá sig á námskeið hjá Sporthúsinu, á meðan keppni stendur.

11. Þátttökugjaldið er 5.000 krónur á hvern keppanda og nauðsynlegt er að gjaldið til Sporthúsins fyrir þann 10. janúar 2012. Hver keppandi verður að greiða fullt gjald.

12. Þessi keppni er fitutapskeppni ekki þyngdartapskeppni - fituprósenta skiptir öllu máli ekki kílóafjöldi og verða úrslitin dæmd eftir því.

Úrslit hvers þátttakanda byggjast á:
* Fituprósentu
* Óska-fituprósentu (Alls ekki meira en 10% fyrir konur og 2% fyrir karlmenn)
* Líkamsfita til þess að missa, mæld í kílóum (Alls ekki meira en 10% fyrir konur og 2% fyrir karlmenn)
* Heildarþyngd í kílóum
* Vöðvaþyngd í kílóum
* Líkamsfita í kílóum
* Óska-þyngd í kílóum
Hver þátttakandi fær útprentun frá hverri mælingu.