Sjúkraþjálfun
- Beinn sími: 564-4067
- Netfang: sjukrathjalfunin@sporthusid.is
|
|
|
Um Sjúkraþjálfunina Sporthúsinu
Stofan er staðsett á efri hæð Sporthússins ,gegnt aðalinngangi. Þar eru lokaðar starfsstöðvar fyrir fjóra sjúkraþjálfara, ásamt sameiginlegu æfingarými og afgreiðslu. Biðstofan er fyrir framan stofuna.
Óhætt er að segja að um 2000 fermetrar af húsnæði Sporthússins nýtast sjúkraþjálfuninni beint. Á sömu hæð eru rúmgóðir salir sem verða nýttir til hópþjálfunar, t.d. fyrir yfirvigtarfólk, hjarta- og lungnasjúklinga, bakveika o.fl.
Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði. Gott aðgengi er fyrir fatlaða og er lyfta milli hæða, hönnuð fyrir hjólastólanotendur.
Stofan er í samstarfi við VIRK starfsendurhæfingu og markmið okkar er að tengjast fleirum endurhæfingarsviðum. Að auki er markmið okkar að allir okkar viðskiptavinir verði sjálfbjarga og sjálfstæðir varðandi sína heilsurækt og beri ábyrgð á eigin heilsu.
|
|
|
Viðskiptavinir okkar munu eiga greiðan aðgang að þeirri aðstöðu og þjónustu sem Sporthúsið heilsurækt býður upp á. Með sérþekkingu okkar á stoðkerfinu og hreyfingum, ásamt góðu samstarfi við aðra þjálfara stöðvarinnar, teljum við okkur geta boðið upp á faglega og góða þjónustu í húsi þar sem fjölbreytnin er í fyrirrúmi.
Stofan er í meirihluta eigu undirritaðra, sjúkraþjálfaranna Hildar Kristínar og Sólveigar. Meðeigendur eru eigendur Sporthússins. Við munum starfa samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands.
|
|
|
Sjúkraþjálfarar:
Einar Örn Guðmundsson
einarorn@sporthusid.is
Hildur Kristín Sveinsdóttir
hildurkr@sporthusid.is
s: 864-4696
Hólmfríður Þorsteinsdóttir
hofi@sporthusid.is
Karólína Ólafsdóttir - í fæðingarorlofi
karolina@sporthusid.is
s: 894-2805
María Jónsdóttir
maja@sporthusid.is
Sigrún Konráðsdóttir
sigrun@sporthusid.is
Sólveig Þráinsdóttir
sola@sporthusid.is
s: 893-1585
Móttaka:
Hulda Sjöfn Ólafsdóttir
sjukrathjalfunin@sporthusid.is
s: 564-4067
