Barnagæslan Krílabær

Barnagæslan Krílabær er við æfingasalinn í stórum og rúmgóðum sal. Þar geta börnin horft á barnaefni í dýnuhorninu, litað eða leikið sér með ýmiskonar leikföng á meðan mamma og pabbi rækta sjálfan sig.

OPNUNARTÍMAR:

mán - fös

kl: 8.00 - 14.00
& 16.00 - 20.00

laugardaga

kl: 9.00 - 13.00

sunnudaga

kl: 10.00 - 13.00

Reglur

  • Allir sem nýta sér þjónustu barnagæslunnar þurfa að undirrita samning. Reglur barnagæslunnar gilda fyrir viðskiptavini jafnt sem starfsmenn Sporthússins sem nýta sér barnagæsluna á auglýstum tímum.

  • Aðeins er leyfilegt að koma með börn undir 12 ára aldri í barnagæslu Sporthússins á auglýstum tímum barnagæslu.

  • Af öryggistástæðum er stranglega bannað að koma með börn á örðum tímum en reglur segja til um. Vegna slysahættu er einnig bannað að taka börn með sér í tækjasal, teygjusal, sturtur, pottasvæði, eða önnur rými í húsinu.

Aldurstakmark

  • 0-4 ára á morgnana
  • 1 árs og eldri seinnipartinn og laugardaga

Verð

  • 300 kr.
  • Frítt er í barnagæsluna fyrir meðlimi Sportklúbbsins.
  • Greitt er fyrir þjónustuna hjá starfsmanni í barnagæslunnar eða í móttöku/afgreiðslu Sporthússins.
  • Ef systkini koma saman er aðeins greitt fyrir annað þeirra.
  • Einnig er hægt að kaupa 10 tíma kort á 2.000 kr. og 20 tíma kort á 2.500 kr. Kortin gilda í 1 ár frá útgáfudegi.

Hámarkstími fyrir barn er 1,5 klst. Hámarkstími er tilgreindur barnanna vegna og eru foreldrar/ forráðamenn beðnir um að virða hann.

Aðlögun barns í barnagæslu er lágmark tvö skipti (í fyrsta skipti er heimsókn með foreldri/forráðamanni. Í annað skipti er foreldri með barni í 15-30 mín og skreppur svo fram í 30 mín) Tíminn lengist eftir því hversu vel barni gengur að aðlagast. Sé barnið órólegt er foreldri/forráðamaður þess sóttur. Starfsfólki er ekki heimilt að skipta á bleiubörnum og er foreldri/forráðamaður sóttur í þeim tilvikum.

Náist hámarksfjöldi í barnagæslu er starfsmanni heimilt að vísa fólki frá.

Börn dvelja í Krílabæ alfarið á ábyrgð foreldra/forráðamanna sinna.