Shape
Þri og fim kl. 9:00
Þri og fim kl. 17:30
Salir
Kennarar
Með Gunnari Már
Tímarnir verða blanda af þrek og styrktaræfingum með áherslu á core svæðið. Hringirnir eru þannig byggðir upp að þeir henta öllum burtséð frá líkamlegu formi eða getu. Hver er að vinna þetta á sínum hraða og þannig byggja upp þol og styrk á komandi vikum.
Þú færð einnig Shape æfingaráætlun sem þú fylgir eftir í salnum 2 í viku svo samtals eru þetta 4 skipti. Æfingarnar í salnum eru byggðar upp með sömu markmið í huga og tímarnir, að brenna fitu, auka þol og bæta styrk.
4 vikna Shape námskeið fyrir konur og karla
Staðsetning: Sporthúsið Kópavogi
Tímasetning: 6:30 / 17:30
Dagar: Þriðjudagar og Fimmtudagar
Næstu námskeið hefjast 15. maí
Skráning í s: 564-4050 á gunnhildur@sporthusid.is eða shape@shape.is
Verð Kr. 14.900 kr.
Hreyfingin:
Gunnar Már verður með tíma 2 í viku á þriðjudögum og fimmtudögum kl 6:30 / 17:30
Tímarnir verða blanda af þrek og styrktaræfingum með áherslu á core svæðið. Hringirnir eru þannig byggðir upp að þeir henta öllum burtséð frá líkamlegu formi eða getu. Hver er að vinna þetta á sínum hraða og þannig byggja upp þol og styrk á komandi vikum.
Þú færð einnig Shape æfingaráætlun sem þú fylgir eftir í salnum 2 í viku svo samtals eru þetta 4 skipti. Æfingarnar í salnum eru byggðar upp með sömu markmið í huga og tímarnir, að brenna fitu, auka þol og bæta styrk.
Mataræðið:
Gunnar Már verður með fyrirlestur í upphafi námskeiðisins um hvernig hægt er að nota matinn sem sannan orkugjafa og hvernig þú getur verið að uppskera frábæran árangur með breyttum neysluvenjum, réttum skammtastærðum og réttu matarvali.
Rétti maturinn getur minnkað sykurlöngunina, bætt úthaldið, bætt hvíldina, aukið kaloríubrennsluna, bætt meltinguna og aukið orkuna hjá þér!
Mataræðið er byggt upp á sömu hugmyndafræði og Shape maturinn og meðan á námskeiðinu stendur færðu afslátt af Shape matnum.
Heilsupóstarnir:
Verða sendir þrisvar í viku og hefur hver vika sitt markmið og sitt þema. Þeir innihalda fullt af fróðleik, uppskriftum og góðum ráðum tengdum mat, kaloríum, næringarefnunum og fleira.
- Vika 1 - BLÓÐSYKURJAFNVÆGI, BETRI MELTING
- Vika 2 - RÉTT VAL Á KOLVETNUM, JAFNVÆGI OG ORKA
- Vika 3 - NÝR MATSEÐILL OG UPPSKRIFTIR
- Vika 4 - HREINSUN OG FÆÐA SEM BÆTIR MELTINGUNA
Skráningarferlið:
Greiða verður við skráningu. Greiðslumátar eru eftirfarandi:
- Setja námskeið í körfu hér á síðunni og ganga frá greiðslu.
- Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni
- Greiða í heimabankanum inn á reikning: 115-26-14050 kennitala: 500108-1690
ATH! senda verður kvittun fyrir greiðslu á gunnhildur@sporthusid.is þar sem kemur fram nafn þátttakanda + kennitala + fyrir hvaða námskeið greitt er. Kvittunin gildir sem greiðsla.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á gunnhildur@sporthusid.is eða í s: 564-4050
