Meðgönguleikfimi
Salir
Kennarar
Líkamsræktar námskeið fyrir barnshafandi konur sem vilja stunda markvissa og örugga líkamsrækt á meðgöngu. Æfingarnar taka mið af þeim líkamlegu breytingum sem konur ganga í gegnum á meðgöngu og hve langt komnar þær eru.
Námskeiðið byggist á þol og styrktarþjálfun og er mikil áhersla lögð á að styrkja kvið-, grindarbotns- og bakvöðva. Æfingarnar eru fjölbreyttar og samanstanda m.a. af þolfimi, styrktaræfingum, þrekhring, dansi, taibo o.fl. Mikil áhersla er lögð á að tímarnir séu skemmtilegir og líflegir og allir finni eitthvað við sitt hæfi.
Þar að auki hittast hóparnir utan tíma og skapast gott og og skemmtilegt andrúmsloft innan þeirra.
Skráningarferlið:
Greiða verður við skráningu. Greiðslumátar eru eftirfarandi:
- Setja námskeið í körfu hér á síðunni og ganga frá greiðslu.
- Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni
- Greiða í heimabankanum inn á reikning: 115-26-14050 kennitala: 500108-1690
ATH! senda verður kvittun fyrir greiðslu á gunnhildur@sporthusid.is þar sem kemur fram nafn þátttakanda + kennitala + fyrir hvaða námskeið greitt er. Kvittunin gildir sem greiðsla.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á gunnhildur@sporthusid.is eða í s: 564-4050
