Krakka- & unglinganámskeið CrossFit Sport
Þri, mið og fös kl. 16:40;13-15 ára
Salir
Kennarar
Við bjóðum upp á fjölbreytta, skemmtilega og krefjandi líkamsrækt fyrir duglega krakka og unglinga sem langar að taka miklum framförum og koma sér í frábært form.
Námskeið er 4 vikur að lengd
Síðustu námskeið fylltust
ATH! skráningarferlið hér að neðan er ekki í gildi. Skráning er á crossfitsport@crossfitsport.is með upplýsingum um nafn og kennitölu einstaklings. Skráning telst gild um leið og greiðsla hefur borist
TAKMARKAÐUR FJÖLDI Í HVERJUM HÓP!
STYRKTARÞJÁLFUN BARNA OG UNGLINGA
Krakkar yngri en 12 ára hafa enga þörf fyrir að æfa með lóðum og því munum við halda okkur við æfingar þar sem þau þurfa í mesta lagi að ráða við eigin líkamsþyngd. Áhersla verður lögð á að kenna rétta líkamsbeitingu og tækni með leikjum og þrautum, og höfuðáhersla lögð á að börnin skemmti sér í virku og krefjandi umhverfi.
Á unglinganámskeiðum CrossFitSport vinnum við fyrst og fremst með líkamsþyngd þátttakenda og leggjum alltaf höfuðáherslu á öryggi og heilsu þeirra. Við gerum okkur fulla grein fyrir því að unglingsárin eru viðkvæmt þroskaskeið þar sem í langflestum tilfellum er óviðeigandi að vinna með miklar utanaðkomandi þyngdir. Aftur á móti munum við leggja ríka áherslu á að kenna rétta líkamsbeitingu, styrkja kjarnavöðva og viðhalda eðlilegum liðleika í gegnum hraðvaxtaskeið, til þess að unglingurinn hafi alla burði til þess að leggja stund á hefðbundnar styrktaræfingar þegar hann hefur þroska til.
Við ætlum okkur að skapa jákvætt, uppbyggilegt, skemmtilegt en jafnframt kröfuhart umhverfi þar sem börnin og unglingarnir munu læra um og ástunda heilbrigða lifnaðarhætti. Þau fá að reyna það á sjálfum sér hvernig ástundun, vinna og agi skilar árangri á ýmsum sviðum líkamlegs og andlegs atgervis. Frekari upplýsingar um innihald námskeiðanna má finna hér
Allar nánari upplýsingar um starfsemi CrossFit Sport er að finna á vefsíðu þeirra, http://www.crossfitsport.is og hjá eiganda og yfirþjálfara CrossFit Sport, Leifi Geir Hafsteinssyni, í síma 773-1212 eða crossfitsport@crossfitsport.is
|
|
|
Skráningarferlið:
Greiða verður við skráningu. Greiðslumátar eru eftirfarandi:
- Setja námskeið í körfu hér á síðunni og ganga frá greiðslu.
- Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni
- Greiða í heimabankanum inn á reikning: 115-26-14050 kennitala: 500108-1690
ATH! senda verður kvittun fyrir greiðslu á gunnhildur@sporthusid.is þar sem kemur fram nafn þátttakanda + kennitala + fyrir hvaða námskeið greitt er. Kvittunin gildir sem greiðsla.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á gunnhildur@sporthusid.is eða í s: 564-4050
