Íþróttaskóli Latabæjar Akranesi
Salir
8 vikna námskeið á Akranesi hefst 11. apríl
Íþróttaskóli Latabæjar er frábært framtak Latabæjar fyrir krakka á aldrinum 3-6 ára. En það er einmitt aldurinn sem okkur finnst aðeins hafa verið útundan í skipulögðu íþróttastarfi. Þetta eru metnaðarfullir tímar, sem byggðir eru upp sem heimsókn í ævintýraveröld Latabæjar. Börnin fá heilbrigða og góða hreyfingu í gegnum leiki, dans og fleira skemmtilegt.
Íþróttaálfur/umsjónarmaður: Heiðar Logi Sigtryggson
verð: 8.900 kr.
ATH! 10% systkinaafsláttur
Íþróttaálfar í Íþróttaskóla Latabæjar Sporthúsinsu jan - apríl ATH!
Lokahátíð Íþróttaskólans verður laugardaginn 14. apríl kl: 11.00. Íþróttaálfurinn sjálfur heimsækir okkur og verður með uppákomur. Við hvetjum alla íþróttaálfana okkar að koma með mömmu, pabba og systkinum. Sjáumst hress og kát!
Íþróttaskóli Latabæjar í Sporthúsinu fer aftur af stað september 2012
|
|
Hver tími er fyrirfram skipulagður og tilbúin og kennararnir okkar eru búnir að ganga í gegnum "nám" til að öðlast kennsluréttindi og útskrifast af Latabæ, svo þeir megi kenna við Íþróttaskólann.
Takmark okkar hjá Íþróttaskólanum er að börn tileinki sér hreyfingu og heilbrigðan lífstíl strax frá unga aldri. Við vonumst einnig til að börnin hvetji aðra fjölskyldumeðlimi til aukinnar hreyfingar og hollustu sem þau læra á námskeiðunum hjá okkur.
Hvatningarorð Magnúsar Schevings "Let´s Move the World" sem þýðist á íslensku "hreyfum við heiminum" eiga vel við okkar starf og hvar er betra en að byrja en hjá börnunum okkar.
Ef þið hafið einhverjar spurningar hikið ekki við að hafa samband við móttöku Sporthússins í s: 564-4050 eða deildarstjóra námskeiða, Gunnhildi Þráinsdóttur á gunnhildur@sporthusid.is
|
|
|
Skráningarferlið:
Greiða verður við skráningu. Greiðslumátar eru eftirfarandi:
- Setja námskeið í körfu hér á síðunni og ganga frá greiðslu.
- Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni
- Greiða í heimabankanum inn á reikning: 115-26-14050 kennitala: 500108-1690
ATH! senda verður kvittun fyrir greiðslu á gunnhildur@sporthusid.is þar sem kemur fram nafn þátttakanda + kennitala + fyrir hvaða námskeið greitt er. Kvittunin gildir sem greiðsla.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á gunnhildur@sporthusid.is eða í s: 564-4050
