Hot Yoga ÁSKORUN 6. feb - 2. mars

HotYogalogo
14.900 ISK
4 vikna námskeið hefst 6. febrúar
Mán, mið og fös kl. 6:15 - 60 mín
Mán og mið kl. 9:00 - 60 mín
Mán og mið kl. 17:30 - 90 mín
Mán og mið kl. 19:30 - 60 mín
Mán og mið kl. 21:00 - 60 mín
Þri og fim kl. 12:00 - 60 mín
Þri og fim kl. 18:00 - 90 mín
Þri og fim kl. 20:00 - 75 mín
Fös kl. 9:00 - 90 mín
Fös kl. 17:30 - 75 mín
Lau kl. 11:00 - stakur tími - 1.700 kr./1.000 kr.

Salir

Kennarar

Frettabladid_Februar2012


Við bjóðum upp á 20 Hot Yoga tíma í viku

Ótakmarkaður aðgangur í alla tíma mánudaga - föstudaga.
Klippikort gilda í tíma á laugardögum kl: 11.00. Aðrir greiða stakan tíma.


Verðskrá:

  • 4 vikna Hot Yoga ÁSKORUN; 6. febrúar - 5. mars = 14.900 kr.
  • 6 mánaða áskrift = 11.900 kr. á mánuði
  • 12 mánaða áskrift+ veglegur kaupauki = 7.900 kr. á mánuði
  • 10 tíma klippikort (allir Hot Yoga tíma í boði + laugardagur) = 12.000 kr. / 8.500 kr. fyrir meðlimi.
  • stakur tími (laug kl: 11.00) = 1.700 kr. / 1.000 kr. fyrir meðlimi Sporthússins.

Klippikort er hægt að kaupa í afgreiðslu Sporthússins.
Áskriftarsamninga þarf að gera skriflega í afgreiðslu Sporthússins eða hjá sölumönnum á staðnum.


HotYoga tímatafla FEB 2012


Nokkur mikilvæg atriði sem vert er að hafa í huga á meðan á námskeiðinu stendur:

  • 1) Mikilvægt er að vera hreinn og helst með hreinar fætur.
  • 2) Vertu létt klædd/ur, ermalaust er betra og létt efni (jogging er heldur of þungt), betra að hafa buxur í styttra lagi en allt í lagi að hafa langar.
  • 3) Nauðsynlegt er að koma með vatnsbrúsa með sér og helst stærra handklæði til þess að hafa á dýnu. Dýnurnar geta orðið sleipar og þá er betra uppá eigið hreinlæti að hafa sitt handklæði undir sér sérstaklega í gólfæfingum. Sporthúsið útvegar minni handklæðastykki.
  • 4) Mikilvægt er að vera nærður fyrir tímann en reynið þó að borða síðasta lagi tveim tímum fyrir tíma.

Við reynum alltaf að virða nágrannann og passa okkur á því að gefa öllum sitt svigrúm og gott hljóð. Ef þið eruð með spurningar um ákveðnar stöður er í lagi að spyrja á milli stöðva en helst ekki í miðri stöðu. Reynum einnig að rápa ekki mikið inn og út úr tíma, nema nauðsynlegt sé, og þá skal fara út á milli stöðva. Einbeitingin á að vera mikil í tímum sem þessum og þess vegna skipta atriði sem þessi miklu máli.

Ef einhverjar spurningar vakna á meðan á námskeiðinu stendur, sendu tölvupóst á johanna@sporthusid.is eða gunnhildur@sporthusid.is

Gangi þér vel og góða skemmtun!



Komdu og prófaðu eina alvöru Hot Yoga sal landsins!

Sporthúsið hefur útbúið nýjan sal sérhannaðan fyrir Hot Yoga. Nú geta Hot Yoga iðkendur loksins stundað alvöru Hot Yoga í sal sem útbúinn er sérstöku hitakerfi sem hitar salinn upp í 37° - 40° á auðveldan hátt. Með þessu móti komast iðkendur Hot Yoga dýpra og auðveldar í yoga stöðurnar.

Hvað er HOT YOGA?

HOT YOGA eða heitt jóga er ákveðin samsetning af jógastöðum sem gerðar eru í upphituðum sal helst í 37-40°C. Hitinn gerir það að verkum að líkaminn hitnar fyrr upp og verður þar af leiðandi sveigjanlegri og meðtækilegri til hreyfingar og teygja og iðkendur komast dýpra inn í stöðurnar. Hitinn gerir það einnig að verkum að iðkendur svitna meira en ella, húðin hreinsast og iðkendur upplifa meiri vellíðan og endurnýjun áhrif eða detox eins og það kallast oft.

Í HOT YOGA er megin áherslan lögð á hrygginn. Allar stöðurnar eru hugsaðar sem styrktaræfingar út frá hryggnum og eiga æfingarnar að styrkja alla vöðva í kringum hann.

HOT YOGA hefur ákveðin læknamátt og hefur dregið úr og læknað hné og bakmeiðsli. HOT YOGA er upprunalega þróað af Bikram sem er vel þekktur virtur í yoga geiranum. Bikram þessi varð fyrir slysi þegar hann var 17 ára og honum var sagt á sínum tíma að hann ætti ekki eftir að geta gengið aftur vegna hné meiðsla. Hannaði hann því HOT YOGA og hefur hann náði fullum bata með iðkun þess.

HOT YOGA er fyrir alla. Ekki er nauðsynlegt að hafa neinn grunn í yoga. Stöðurnar eru einfaldar og í nokkrum þrepum og geta byrjendur því byrjað í fyrsta þrepi hverrar stöðu. Eftir því sem líður á og með aukinni getu og sjálfstrausti eiga þátttakendur að komast dýpra og dýpra ofan í hverja stöðu fyrir

Við bjóðum einnig upp á 1 stakan Hot Yoga tíma í viku
LAUGARDAGAR KL: 11.00
Allir velkomnir!
Verð: 1.700 kr. / 1.000 kr. fyrir meðlimi Sporthússins


Skráningarferlið:

Greiða verður við skráningu. Greiðslumátar eru eftirfarandi:

  • Setja námskeið í körfu hér á síðunni og ganga frá greiðslu.
  • Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni
  • Greiða í heimabankanum inn á reikning: 115-26-14050 kennitala: 500108-1690
    ATH! senda verður kvittun fyrir greiðslu á gunnhildur@sporthusid.is þar sem kemur fram nafn þátttakanda + kennitala + fyrir hvaða námskeið greitt er. Kvittunin gildir sem greiðsla.

Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á gunnhildur@sporthusid.is eða í s: 564-4050