Happy Yoga
Salir
Kennarar
Happy Yoga er æfingakerfi sem sameinar bætt heilsufar og aukna hamingju. Þar sem æfingarnar eru byggðar á ævafornri vitneskju um orkubrautirnar og hvernig hægt er að efla starfssemi líffæranna með því að styrkja og auka sveigjanleika í vöðvahóp hverrar orkubrautar. En hvert líffæri á sér eina orkubraut, vöðvarnir í orkubrautinni veita líffærinu flæði og stirk til að starfa eðlilega og þess vegna upplifum við minni starfssemi í líffærum ef vöðvarnir eru stirðir, bólgnir eða aumir. Þar sem hvert líffæri sér líka til þess að jákvæð persónueinkenni séu virk hjá okkur þá eflum við jákvæð persónueinkenni með því að auka flæði í vöðvunum.
Í hverri æfingu spennum við vöðvana til fulls um leið og við teygjum hann, á þann hátt lengjst vöðvinn til frambúðar og losar sig við óhreinindi, stífleika og spennu fyrir lífstíð. Með þessu sérstaka æfingakerfi styrkjum við líkamann og aukum orkuflæðið til að öðlast meiri lífskraft. Með auknu orkuflæði í hreinum vöðvum og jafnvægi í starfssemi líffæranna öðlumst við jákvæðara hugarfar, léttleika í líkamanum og meiri stirk, aukinn sveigjanleika á sama tíma og við eflum persónuleikann.
Með sameiningu á heilsu og hugarfari upplifum við meiri hamingju og vellíðan, losum okkur við neikvæðar hugasanir og niðurrif og streitu.
Þeir sem hafa kynnst þessu æfingakerfi eru sammála um að hafa öðlast meiri styrk, sveigjanleika, góðan fróðleik og jákvæðari persónuleika - breytingar á stuttum tíma.
Mjög margir framúrskarandi íþróttamenn og konur um allan heim stunda þessar æfingar og hafa náð lengra í sinni íþróttagrein en áður. Mörg íþróttalið og íþróttafólk hefur sóst eftir þessum æfingum til að auka getu sína fyrir stórmót eins og heimsmeistarakeppnir og Olympiuleikana eins og frægt er orðið.
Víða eru þessar æfingar notaðar sem sjúkraþjálfun eftir meiðsli eða þegar fólk hefur haft stöðuga verki eða óþægindi í líkamanum. Æfingarnar losa mjög vel allar stíflur og óþægindi eins og bólgur og auma vöðva eða vanlíðan af völdum skertrar starfssemi líffæranna. Eins og ónóg súrefnisupptaka, vanvirkni ónæmiskerfisins og léleg brennsla.
Við kennum öndun sem dregur úr streitu og eykur vellíðan. Kynnum mátt slökunar og hugleiðslu og kennum alveg nýtt hugleiðsluform. Einnig er mikill fróðleikur um starfssemi líkamans og hvernig hægt era ð breyta hugarfari og líðan.
Skráningarferlið:
Greiða verður við skráningu. Greiðslumátar eru eftirfarandi:
- Setja námskeið í körfu hér á síðunni og ganga frá greiðslu.
- Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni
- Greiða í heimabankanum inn á reikning: 115-26-14050 kennitala: 500108-1690
ATH! senda verður kvittun fyrir greiðslu á gunnhildur@sporthusid.is þar sem kemur fram nafn þátttakanda + kennitala + fyrir hvaða námskeið greitt er. Kvittunin gildir sem greiðsla.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á gunnhildur@sporthusid.is eða í s: 564-4050
