Foam Flex

FoamFlex
14.900 ISK
6 vikna námskeið hefst 21. febrúar
Þri og fim kl. 17:00;salur 5

Salir

Kennarar


6 vikna námskeið hefst 21. febrúar

Kennt á þri + fim kl: 17.00
Kennarar: Rakel Guðbjörnsdóttir & Valdís Sylvía Sigurþórsdóttir
Verð: 14.900 kr.
ótakmarkaður aðgangur að allri aðstöðu og opnum hóptímum er innifalið í námskeiðagjaldi


Langar þig að prófa Foam Flex?

Við bjóðum upp á nokkra opna Foam Flex tíma í viku. Eftirfarandi tímar eru í boði fyrir korthafa Sporthússins:
* þriðjudaga kl: 6.00 / kennari: Rakel
* fimmtudaga kl: 8.45 / kennari: Valdís
* fimmtudaga kl: 12.00 / kennari: Valdís
* föstudaga kl: 16.20 / kennari: Rakel
* sunnudaga kl: 11.00 / kennari: Valdís


Hvað er Foam Flex?

Foam flex er sjálfnuddandi aðferð þar sem unnið er á vöðvum, bandvef og trigger- punktum.

Til að útskýra áhrif foam flex þarf að hafa í huga hvert er hlutverk bandvefjar. Hlutverk bandvefjar er meðal annars að styðja við líffæri, vöðva og bein, veita vörn gegn hnjaski, mynda brautir fyrir æðar og taugar sem gerir okkur kleift að standa uppréttum o.fl. Þegar tog eða spenna myndast í bandvefnum, getur það haft áhrif á líkamann í heild og myndað skekkjur.

Hvað er trigger-punktur?

Triggepunkti má lýsa sem eymsli á staðbundnum svæðum þar sem sárir hnúðar myndast. Þegar þrýst er á hnúðinn veldur það leiðniverk sem getur birst sem dofi, tilfinningarleysi, sviði, stingur, vöðvakippur eða titringur.

Önnur einkenni trigger-punkta:

  • Minni hreyfigeta í liðum
  • Húð fölnar og er köld
  • Spennuhöfuðverkur
  • Rennslisstöðvun sogæðavökva

Af hverju myndast trigger- punktar?

Aðallega út af langvarandi stressi og blóðþurrð í vefjum.
Tilgangurinn með foam flex aðferðinni er að létta á alls kyns verkjum sem fólk finnur fyrir jafnvel daglega og að stuðla að auknum liðleika, sem gerir fólki kleift að líða betur líkamlega.


Sjúkraþjálfara og kírópraktorar mæla með Foam Flex

Hildur Kristín Sveinsdóttir, Sjúkraþjálfari BSc, íþróttakennari

"Í kringum 85% af almenningi í vestrænum heimi fær vandamál í bakið (Vinnumálastofnun Íslands ). Byggingar þurfa að standa á sterkum og stöðugum grunni. Mjaðmagrindin er grunnur og hryggurinn bygging. Með þjálfun djúpvöðvakerfis (grindabotn, dýpstu kvið- og bakvöðvar og þind) verður bæði grunnurinn og byggingin sterkari fyrir utanaðkomandi áreiti. Slík þjálfun er lykillinn að betri bakheilsu og fyrirbyggir bakvandamál. Stífir vöðvar minnka hreyfigetu í nærliggjandi liðum. Þannig geta stífir mjaðmavöðvar valdið vandamálum í baki.

FoamFlex er æfingaform sem byggir upp styrk í djúpvöðvum og þar með stöðugleika í bol. Æfingar eru gerðar á bandvefsrúllum. Þeim er einnig rúllað yfir stífa vöðva, þannig teygist á bandvefnum, blóðflæði eykst og spenna minnkar í vöðvanum.

FoamFlex er spennandi nýjung fyrir bakheilsu."

Magni Bernhardsson B.Sc. D.C. Kírópraktor, Kírópraktorstofa Íslands

"Foam Flex er frábær leið fyrir alla sem vilja auka styrk, jafnvægi og hreyfanleika á sama tíma. Við langvarandi óstöðugleika styttast gjarnan ákveðin liðbönd og vöðvar. Foam Flex getur flýtt fyrir að þessi liðbönd og vöðvar nái stöðugleika á ný og leiðir það til betri líðan fólks til lengri tíma."


Hvað er Foam Flex æfingakerfið og hvaða áhrif hefur það?

Sporthúsið er stolt af því að kynna nýja þróun á tækni með foam rúllum sem mun hjálpa þér að lifa verkjalausu lífi. Rúllurnar og notkun þeirra hjálpar til við endurnyja bandvef.

Nýjustu rannsóknir sýna að, með daglegri hreyfingu og það eitt eldast verldur vökvaskorti í bandvef og taugakerfi. Rúllurnar gegna mikilvægu hlutverki í meðferðaræfingum þ.e. ýmis konar líkamsmeðferðum eins og t.d. bandvefslosun . Með hjálp FoamFlex æfingarkerfinu endurnærir þú sogæðakerfið, vökvar og styrkir bandvefinn. Þegar þú notar rúlluna ertu að vinna djúpt inn í vöðvunum og nærð til viðkvæmra svæða eða vöðvahnúta. FoamFlex eykur blóðflæði til vandræðasvæða með því að beita stöðugum og djúpum strokum sem og þrýstingi. Þannig vinnur þú þreytu úr vöðvum og endurnýjar þannig orku líkamans.

FoamFlex er sjálfsmeðferðartækni sem hjálpar til við að koma í veg fyrir og lækna verki og eyða burt neikvæðum áhrifum öldrunar. Þessi greinanlega aðferð gefur líkama þínum meira jafnvægi og aðferð til að hlusta á aðvörun líkamans við verkjum og óstöðugleika í vökvaskorti bandvefs og róa taugakerfið.

Eftir fyrsta Foam Flex tímann þinn munt þú eftir að finna mun!

Prófaðu Foam Flex - sjálf-nuddandi meðferð sem hjálpar þér að nudda burt vöðvaverki og hnúta í vöðvum og leyfir þér að vera í hámarksgetu líkamans.


Skráningarferlið:

Greiða verður við skráningu. Greiðslumátar eru eftirfarandi:

  • Setja námskeið í körfu hér á síðunni og ganga frá greiðslu.
  • Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni
  • Greiða í heimabankanum inn á reikning: 115-26-14050 kennitala: 500108-1690
    ATH! senda verður kvittun fyrir greiðslu á gunnhildur@sporthusid.is þar sem kemur fram nafn þátttakanda + kennitala + fyrir hvaða námskeið greitt er. Kvittunin gildir sem greiðsla.

Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á gunnhildur@sporthusid.is eða í s: 564-4050