Fit Pilates
Þri og fim kl. 19:30
Salir
Kennarar
Sléttur magi og stinnur rass
Fit Pilates eru styrktar- og brennsluæfingar á boltum og með handlóð. Fit Pilates lengir og styrkir "core" vöða líkamans.
6 vikna námskeið hefjast 20. & 21. febrúar
Þú getur valið um 2x eða 3x í viku.
kennt á eftirfarandi tímum:
1. FIT PILATES SÍÐDEGI
mán + mið + fös kl: 17.30
verð: 19.900 kr.
2. FIT PILATES KVÖLD
þri + fim kl: 19.30
verð: 18.900 kr.
Umsagnir íþróttafólks sem stundað hefur Fit Pilates í Sporthúsinu:
Inga Birna Friðjónsdóttir, leikamaður m.fl. KVK fótbolta - Stjörnunni
"Undanfarin ár hef ég verið að stríða við mikil meiðsl í baki og á mjaðmasvæði. Fit Pilates hefur hjálpað mér í að styrkja djúpu vöðvana sem gleymast oft í þjálfun hópíþrótta. Vegna þessa hef ég getað haldið áfram að spilað fótbolta í efstu deild. Ég mæli eindregið með að allir prófi Fit Pilates og fái þar með þjálfun sem styrkir alla vöðva og jafnvægið á sama tíma."
Harpa Þorsteinsdóttir, leikmaður m.fl. KVK fótbolta - Breiðablik
"Allan minn íþróttaferil hef ég átt í vandræðum með bak og mjaðmirþ Ég hef alltaf verið að lenda í smávægilegum meiðslum sem haldið hafa aftur af mér. Ég fótbrotnaði síðasta sumar og ákvað að nýta tímann í endurhæfingunni til þess að styrkja þessa þætti, þ.e. styrkja bak, mjaðmir og maga. Ég leitaði mér ráða og var bent á þessi námskeið hjá Hildi og Guðmundi í Sporthúsinu og því er ég mjög þakklát fyrir.
Á þessu eina námskeiði hef ég fundið fyrir miklum breytingum sérstaklega hvað styrk í baki og mjöðmum varðar. Ég hef alltaf átt í vandræðum með smávægileg nárameiðsl við byrjun undirbúningstímabils en hef alveg sloppið við það núna. Ég tel þessar æfingar vera mjög fyrirbyggjandi og góðan grunn fyrir komandi átök næsta misseris. Ég mæli eindregið með Fit Pilates!"
Fit Pilates:
- styrkir allan líkamann
- gefur lengri og fallegri vöðva
- þjálfar djúpvöðva
- gefur flatari kviðvöðva
- grennri læri
- sterkara bak
- bætir jafnvægi
- bætir líkamsstöðu
- eykur liðleika
- bætir öndun
|
|
|
|
Skráningarferlið:
Greiða verður við skráningu. Greiðslumátar eru eftirfarandi:
- Setja námskeið í körfu hér á síðunni og ganga frá greiðslu.
- Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni
- Greiða í heimabankanum inn á reikning: 115-26-14050 kennitala: 500108-1690
ATH! senda verður kvittun fyrir greiðslu á gunnhildur@sporthusid.is þar sem kemur fram nafn þátttakanda + kennitala + fyrir hvaða námskeið greitt er. Kvittunin gildir sem greiðsla.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á gunnhildur@sporthusid.is eða í s: 564-4050
