Crossfit grunnnámskeið 2012

19.500 ISK
4 vikna námskeið hefst 7. mars
Þri, mið og fös kl. 6:00
Þri, mið og fös kl. 7:00
Þri, mið og fös kl. 17:30
Þri, mið og fös kl. 18:30

Kennarar

SKRÁNING ER HAFIN Á GRUNNNÁMSKEIÐ SEM HEFJAST 7. MARS

Grunnnámskeið sem hefst 7. mars
1. þri + mið + fös kl: 6.00
2. þri + mið + fös kl: 7.00
3. þri + mið + fös kl: 17.30
4. þri + mið + fös kl: 18.30

3 æfingar í viku

  • Farið er yfir grunnatriði Cross Fit
  • Formið byggt upp
  • Rétt líkamsbeiting og tækni

Skráning í s: 564-4050 eða gunnhildur@sporthusid.is

Innifalið:

  • Kennsla í réttri líkamsbeitingu og öruggri æfingatækni
  • Faglegur og traustur undirbúningur fyrir framhaldsþjálfun hjá CrossFit Sport
  • 3-4 CrossFit æfingar á viku
  • Aðgangur að Sporthúsinu og öllu því sem þar er boðið upp á
  • Fræðsla um mataræði og æfingatækni.

HVAÐ ER CROSSFIT?

CrossFit er starfræn (e. functional) líkamsrækt fyrir unga jafnt sem aldna og sterka jafnt sem veika. CrossFit byggir á síbreytilegri blöndu lyftinga, líkams- og þolæfinga, með það að markmiði að búa iðkendur sem best undir hið óþekkta og óvænta. Fólk sem leggur stund á CrossFit tekur furðulega hröðum framförum, tekst á við veikleika sína af einbeittum vilja og lærir að gera hluti sem það áður lét sig aðeins dreyma um. Í öllum CrossFit stöðvum sem standa undir nafni gerjast uppbyggilegt, jákvætt og náið samfélag iðkenda sem eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á líkamlega getu, gagnrýna hugsun og heilbrigt líferni.

Öll CrossFit þjálfun í Sporthúsinu er í umsjón CrossFitSport. Allar nánari upplýsingar um starfsemi er að finna á vefsíðu þeirra, http://www.crossfitsport.is og hjá eiganda og yfirþjálfara CrossFit Sport, Leifi Geir Hafsteinssyni, í síma 7731212 eða leifurgeir@crossfitsport.is


Skráningarferlið:

Greiða verður við skráningu. Greiðslumátar eru eftirfarandi:

  • Setja námskeið í körfu hér á síðunni og ganga frá greiðslu.
  • Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni
  • Greiða í heimabankanum inn á reikning: 115-26-14050 kennitala: 500108-1690
    ATH! senda verður kvittun fyrir greiðslu á gunnhildur@sporthusid.is þar sem kemur fram nafn þátttakanda + kennitala + fyrir hvaða námskeið greitt er. Kvittunin gildir sem greiðsla.

Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á gunnhildur@sporthusid.is eða í s: 564-4050