Bakleikfimi
Salir
Skráning er hafin í bakleikfimi sem hefur verið að vegum Sjúkraþjálfunarinnar og Breiðu Bakana.
Skráning á netfangið: harpahe@mmedia.is eða í s: 897 2896
5 mánaða námskeið , kostar 53.000 kr fullt námskeið. Námskeiðið stendur til 31 maí og ef fólk byrjar 1 febrúar þá er verð kr. 42.000 (kr. 10.500/mán).
Kennslan fer fram mánudaga og miðvikudaga kl. 12.05 til 13.00
Lýsing: Áhersla er lögð á að þjálfa upp stöðu og hreyfimynstur sem eru hagstæð fyrir vöðva og liði baks og útlima. Efla virkni og úthald djúpa vöðvakerfisins sem styður við liðina og minnka óæskilega spennu vöðva er trufla eðlilega starfsemi. Líkamsvitund, samhæfing og jafnvægi er einnig markvist þjálfað upp auk þess sem unnið er að því að auka hreyfanleika, úthald og álagsþol líkamans.
Sjúkraþjálfarar: Hildur Kristín Sveinsdóttir BSc og Harpa Helgadóttir, PhD í Líf- og læknavísindum, sérfræðingur í greiningu og meðferð stoðkerfis (Manual Therapy).
Frekari upplýsingar og skráning á http://bakleikfimi.is, einnig er hægt að hafa samband við Hildi í hildurkr@sporthusid.is, og Hörpu í harpahe@mmedia.is og í síma 897-2896.
Skráningarferlið:
Greiða verður við skráningu. Greiðslumátar eru eftirfarandi:
- Setja námskeið í körfu hér á síðunni og ganga frá greiðslu.
- Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni
- Greiða í heimabankanum inn á reikning: 115-26-14050 kennitala: 500108-1690
ATH! senda verður kvittun fyrir greiðslu á gunnhildur@sporthusid.is þar sem kemur fram nafn þátttakanda + kennitala + fyrir hvaða námskeið greitt er. Kvittunin gildir sem greiðsla.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á gunnhildur@sporthusid.is eða í s: 564-4050
