Salir
Teygjur 101
Lau kl. 12:30
Teygjur 101 eru tímar þar sem blandað er saman bandvefslosun og teygjum. Fyrri hluti tímans fer í að rúlla líkamann með frauðrúllum til að losa um bandvefina og fá vöðvann til að slaka á. Næst taka við góðar teygjur, teknar bæði úr fimleikum og bardagaíþróttum.
Æfingarnar auka blóðflæði til vöðvanna og flýtir fyrir "recovery" eftir stífar æfingar.
Tímarnir henta öllum þeim sem vilja auka liðleika og mýkja sig upp eftir erfiða æfingaviku.
