Salir

Stöðvaþrek

Mán og mið kl. 17:30

Það skiptir ekki máli hversu góðu eða slæmu formi þú ert í því í þessum tímum stjórnar þú hversu mikið þú reynir á þig. Unnið er með eigin líkamsþyngd ásamt ketilbjöllum og lóðum.

Æfingar sem henta öllum, þú stjórnar því hversu mikið þú reynir á þig.

Uppbygging tímans er að í byrjun er hitað upp og þá er farið í mismunandi æfingar sem reyna á alla vöðva líkamans.

Unnið er með þol og styrk til skiptis og með því ýtir það undir mikla brennslu samhliða alhliða vöðvauppbyggingu.