Salir
Kennarar
Body Step
STÍGÐU Á PALL!
Body Step hefur farið sigurför um heiminn og má með sanni segja að það hafi endurlífgað pallatímana. Tímarnir eru frábær skemmtun sem gerir rass og læri stinn á methraða.
Með því að nota einfalda rútínu með hreyfingum sem auðvelt er að fylgja eftir og örvandi tónlist, gerir Body Step þér kleift að æfa af þinni ákefð án þess að þú þurfir að hugsa of mikið. Einfaldar en samt krefjandi forskrifaðar æfingar eru ávísun á hnitmiðaðann, orkumikinn brennslutíma.
Tímarnir henta báðum kynjum, öllum aldri og styrkleikum. Þú stjórnar hversu hart þú leggur að þér með því að hafa pallinn í þeirri hæð sem hentar þér hverju sinni og gerir þar með æfinguna léttari eða erfiðari.
Í Body Step ertu að brenna fullt af kaloríum, styrkja vöðva (sérstaklega rass og læri) og auka þol.
